Um Kaspersky
Kaspersky Lab er alþjóðlegt fyrirtæki sem hefur yfir 1700 starfsmenn í um 100 löndum víðsvegar um heiminn og vörur þess eru í notkun hjá yfir 300 milljón notendum.
Kaspersky Lab þróar, framleiðir og dreifir öryggislausnum sem vernda persónuupplýsingar viðskiptavina sinna og sjá fyrirtækjum fyrir góðum lausnum til að stjórna áhættuþáttum. Þeir útvega vöru sem verndar hverskyns upplýsingar fyrir vírusum, tölvuþrjótum og ruslpósti fyrir heimilisnotendur sem og fyrirtæki og bjóða notendaráðgjöf og tæknihjálp.
Kaspersky Lab var stofnað árið 1997 sem alþjóðlegur heildsali fyrir öryggishugbúnað. Höfuðstöðvar Kaspersky Lab eru í Moskvu í Rússlandi og eru útibú á Englandi, í Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Póllandi, Japan, Kína og Bandaríkjunum. Einnig er fyrirtækið tengt stóru neti yfir 500 fyrirtækja um allan heim.
Vörur Kaspersky Lab eru viðurkenndar af West Coast Labs og fá reglulega verðlaun frá leiðandi fyrirtækjum í upplýsingatækni. Kaspersky Lab er einnig stoltur meðlimur í SUSE og Red Hat. Sérfræðingar Kaspersky Lab eru virkir í upplýsingatæknisamtökum eins og CARO (Rannsóknarsamtök um vírusvarnir) og ICSA (Alþjóðleg samtök og tölvuöryggi).
