Kaspersky Work Space Security
Vörn fyrir vinnustöðvar og snjallsíma
Kaspersky Work Space Security býður upp á miðstýrða vörn gagnvart öllum nútíma tölvuhættum fyrir vinnustöðvar og snjallsímum inn á fyrirtækjanetinu jafnt sem utan þess.
Kaspersky Work Space Security tryggir örugga vörn fyrir notendur sína með fullri stjórnun á allri gagnaumferð (þar á meðal tölvupóstum og netsamskiptum) á PC tölvum, hvort sem þeir eru á eigin vinnustaðaneti eða á ferðalögum.
Eiginleikar
- Vírusvörn fyrir vinnustöðvar, fartölvur og snjallsíma
- Ný vírusleitarvél sem skilar meiri hraðvirkni og skilvirkni
- Öflug forvarnartækni sem hindrar nýjar og óþekktar ógnir í að valda skaða
- Rauntíma skönnun á tölvupósti og internet umferð
- Persónulegur eldveggur sem ver allar tegundir netkerfa, einnig þráðlaus net
- Staðbundin vörn gegn óæskilegum tölvupósti og upplýsingaþjófnaði
- Kemur í veg fyrir gagnaþjófnað á týndum snjallsímum
- Fullur stuðningur við 64-bita kerfi
