A A A

Kaspersky Total Space Security

Marglaga vörn fyrir vinnustöðvar / snjallsíma / skráarþjóna / póstþjóna / hópvinnsluþjóna / internetgáttir

Kaspersky Total Space Security býður upp á samþætta vörn fyrir fyrirtækjanet, af öllum stærðum og gerðum, gagnvart öllum nútíma tölvuhættum. 

Kaspersky Work Space Security býður upp á örugga vörn fyrir notendur sína með fullri stjórnun á allri gagnaumferð, þar á meðal tölvupóstum, internetumferð og netsamskiptum. Varan býður upp á fullkomna vörn fyrir jafnt vinnustöðvar sem og snjallsíma, og tryggir notendum sínum öruggan og hraðan aðgang að fyrirtækjanetinu og internetinu, auk öruggra samskipta í gegnum tölvupóst.

Eiginleikar

  • Innbyggð vörn gegn spilliforritum, njósnaforritum, árásum hakkara og ruslpósti á öllum þrepum fyrirtækjanetsins, frá vinnustöðvum til internetgátta
  • Ný vírusleitarvél sem skilar meiri hraða og skilvirkni
  • Öflug forvarnartækni fyrir vinnustöðvar og skráarþjóna sem hindrar nýjar og óþekktar tölvuóværur í að valda skaða
  • Rauntíma skönnun á tölvupósti og internet umferð
  • Persónulegur eldveggur sem verndar allar tegundir netkerfa, einnig þráðlaus net
  • Staðbundin vörn gegn óæskilegum tölvupósti og upplýsingaþjófnaði
  • Kemur í veg fyrir gagnaþjófnað á týndum snjallsímum
  • Vörn fyrir skráarþjóna sem keyra á Windows, Linux og Novell NetWare
  • Allhliða vörn fyrir útistöðvaþjóna og klasaþjóna
  • Álagsjöfnun á netþjónavinnslu
  • Vírusvörn fyrir Sendmail, qmail, Postfix og Exim póstþjóna
  • Skönnun á pósti, gagnagrunnum og öðrum hlutum tengdum Lotus Notes/Domino þjónum
  • Skannar öll skeyti á Microsoft Exchange servers, einnig almennar möppur (public folders)
  • Stöðvar rusl- og fjölpósta auk útbreyðslu spilliforrita
  • Miðstýrð vörn gagnvart ruslpósti
  • Miðstýrð rauntíma könnun og hreinsun á internet umferð (HTTP/FTP)
  • Verndar allar helstu tegundir af Microsoft ISA netþjónum
  • Stuðningur við proxyþjóna
  • Fullur stuðningur við 64-bita kerfi

Nánar

Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Hafa samband | Vefumsjón
Kaspersky® er skráð vörumerki Kaspersky Lab Ltd.