A A A

Kaspersky Security fyrir póstþjóna

Kaspersky Security fyrir póstþjóna er lausn sem verndar póst- og hópvinnsluþjóna frá tölvuóværum og ruslpósti.

Þessi vörulína býður upp á lausnir fyrir alla helstu póstþjónana, þar á meðal Microsoft Exchange, Lotus Notes/Domino, Sendmail, qmail, Postfix og Exim. Einnig er hægt að nota hana til þess að setja upp sérnota póstgáttir.

Eiginleikar

  • Samþætt vörn fyrir póstþjóna gagnvart öllum tegundum af tölvuhættum og ruslpósti
  • Rauntíma vírusskönnun
  • Áætlunarstjóri fyrir skönnun á pósti og gagnagrunnum
  • Vörn fyrir Sendmail, qmail, Postfix og Exim póstþjóna
  • Skannar skeyti, gagnagrunna og aðra hluti á Lotus Notes/Domino þjónum
  • Skannar öll skeyti á Microsoft Exchange server, meðal annars almennar möppur (Public folders)
  • Styður Microsoft Exchange Server 2007 klasa
  • Síar skeyti eftir tegundum fylgiskjala
  • Stöðvar fjölpósta og dreifingu spilliforrita
  • Miðstýrð vörn gegn ruslpósti
  • Álagsjöfnun á netþjónaörgjörva

Nánar

Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Hafa samband | Vefumsjón
Kaspersky® er skráð vörumerki Kaspersky Lab Ltd.