Kaspersky Security fyrir internet gáttir
Kaspersky Security fyrir internet gáttir býður upp á örugga internetnotkun fyrir alla starfsmenn á fyrirtækjanetinu og fjarlægir sjálfkrafa allar tölvuóværur úr HTTP/FTP umferðinni.
Kaspersky Security fyrir Internet Gateway styður allar útgáfur af algengustu ytri eldveggjunum. Fínstillingartækni, stækkunarmöguleikar og stuðningur við nýjustu kerfin gera hana ákjósanlega fyrir stór fyrirtæki með mikla net- og gagnaumferð.
Eiginleikar
- Rauntíma skönnun á internet umferð (í gegnum HTTP/FTP samskiptareglur)
- Samþætt vörn gegn öllum tegundum af tölvuóværum
- Vörn gegn tölvuóværum sem dreifa sér í gegnum samskiptaforrit (ICQ, MSN, osfrv.)
- Greining á hugsanlega hættumlegum forritum
- Styður Microsoft ISA Server
- Styður Squid, Blue Coat, og Cisco proxy þjóna
- Mikið úrval af stillingum fyrir síun netumferðar
- Álagsjöfnun á netþjónavinnslu
