A A A

Anti-Virus fyrir skráarþjón

Kaspersky Anti-Virus fyrir skráarþjóna verndar alla þjóna sem keyra á Microsoft Windows, Novell NetWare, Linux eða Samba fyrir öllum tegundum af tölvuóværum.

Vírusvörn fyrir samnýtt skráarsvæði er nauðsynleg, þar sem ein sýkt skrá á skráarþjóninum getur sýkt vinnustöðvarnar hjá öllum notendum sem nota svæðið. Öflug vörn á skráarþjóninum tryggir ekki einungis að notendur og gögn þeirra séu örugg, heldur útilokar einnig hættuna á að sýkt skrá nái að smita öryggisafrit af skránum, sem gæti valdið síendurteknum vírussmitum.

Eiginleikar

  • Verndar skráarþjóna sem keyra á Windows, Linux (þ.á.m. Samba) og Novell NetWare
  • Háþróðuð forvirk vörn sem verndar tölvuna gegn nýjum og óþekktum veirum
  • Raun-tíma vírusskönnun
  • Meðferð á virkum sýkingum
  • Áætlunarstjóri fyrir skönnun á gagnageymslu
  • Skönnun á mikilvægum kerfiseiningum
  • Einangrun á sýktum vinnustöðvum
  • Ný vírusleitartækni sem tryggir hagkvæma nýtingu á vinnslugetu tölvunar
  • Álagsjöfnun á netþjónavinnslu
  • Fullur stuðningur við 64-bita kerfi

Nánar

Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Hafa samband | Vefumsjón
Kaspersky® er skráð vörumerki Kaspersky Lab Ltd.