A A A

Uppsetning á Kaspersky Internet Security 2011

Til að setja upp Kaspersky Internet Security þarf að byrja að sækja forritið hér.
Þegar búið er að sækja forritið á þarf að tvísmella á skránna sem þú sóttir og þá hefst innsetningin

 

ATH. Mikilvægt er að fjarlægja aðrar vírusvarnir úr tölvunni áður en Kaspersky er settur upp.



Skref 1: Í fyrsta glugganum er einfaldlega ýtt á Next.

Skref 2: Í öðrum glugganum kemur upp End User License Agreement of Kaspersky Lab. Þar þarf að ýta á I accept. Með því að gera það þá ertu samþykkur reglum forritsins.

Skref 3: Hérna geturu valið um að taka þátt í öryggiskerfi Kaspersky sem þýðir að vírusvörnin þín sendir Kaspersky upplýsingar um vírusa sem hún finnur. Engar persónulegar upplýsingar eru sendar með þeim upplýsingum. Það er ekki nauðsynlegt að taka þátt í öryggiskerfi Kaspersky og hefur engin áhrif á virkni vírusvarnarinnar, en gæti hjálpað Kaspersky að finna og greina nýja vírusa. Til að halda áfram með uppsetninguna á forritinu er ýtt á Install



Skref 4: Hérna slærðu inn Activation code (lykilnúmerið sem þú fékkst í tölvupósti). 



Skref 5: Fullvissaðu þig um að hakað sé í Start Kaspersky Internet Security og smelltu á Finish takkann til þess að klára uppsetninguna á vírusvörninni.
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Hafa samband | Vefumsjón
Kaspersky® er skráð vörumerki Kaspersky Lab Ltd.