A A A

Uppsetning á Kaspersky Anti-Virus 2011

Til að setja upp Kaspersky Anti-Virus þarf að byrja að sækja forritið hér.
Þegar búið er að sækja forritið á þarf að tvísmella á skránna sem þú sóttir og þá hefst innsetningin

 

ATH. Mikilvægt er að fjarlægja aðrar vírusvarnir úr tölvunni áður en Kaspersky er settur upp.



Hér sést fyrsti glugginn, hér er einfaldlega ýtt á Next.



Hér þarf að ýta á I agree. Með því að gera það þá ertu samþykkur reglum forritsins.



Hérna geturu valið um að taka þátt í öryggiskerfi Kaspersky sem þýðir að vírusvörnin þín sendir Kaspersky upplýsingar um vírusa sem hún finnur. Engar persónulegar upplýsingar eru sendar með þeim upplýsingum. Það er ekki nauðsynlegt að taka þátt í öryggiskerfi Kaspersky og hefur engin áhrif á virkni vírusvarnarinnar, en gæti hjálpað Kaspersky að finna og greina nýja vírusa. Til að halda áfram með uppsetninguna á forritinu er ýtt á Install.



Hérna slærðu inn Activation code (lykilnúmerið sem þú fékkst í tölvupósti).



Hér hefur lykillinn farið rétt inn og sýnir þá forritið upplýsingar um lykilinn. Til að halda áfram er ýtt á Next.



Hakaðu í Start Kaspersky Anti-Virus 2011 og smelltu á Finish til að klára uppsetninguna á Kaspersky Anti-Virus 2011.
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Hafa samband | Vefumsjón
Kaspersky® er skráð vörumerki Kaspersky Lab Ltd.